1 árs stúlka hvarf úr rúmi sínu

Tilkynnt var um hvarf Shaylyn Ammerman á miðvikudagsmorgun.
Tilkynnt var um hvarf Shaylyn Ammerman á miðvikudagsmorgun.

22 ára karlmaður hefur verið handtekinn í tengslum við hvarf hinnar eins árs gömlu Shaylyn Ammerman. Hún hvarf frá heimili sínu á aðfaranótt miðvikudags.

Tilkynnt var um hvarf stúlkunnar frá heimili föðurins í Indiana-ríki í Bandaríkjunum snemma á miðvikudagsmorgun. Faðirinn segir hana hafa verið sofandi í rúmi sínu þegar hann leit inn til hennar seint á þriðjudagskvöldið. Þegar hann vaknaði um morguninn var hún hins vegar horfin.

Lögreglan fann í gærkvöldi lík ungrar stúlku sem passar við lýsinguna á Ammerman en ekki hefur tekist að bera kennsl á líkið. Hún fannst í garðinum við hús aðeins nokkrum kílómetrum frá heimili Ammermans.

Að sögn lögreglu hefur engin ákæra verið út og stendur rannsókn á málinu ennþá yfir. Lögregla mun ræða við fleiri en þann sem hefur verið handtekinn. 

ABC greinir frá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert