Neitar að sýna Vaxxed

Robert De Niro
Robert De Niro AFP

Umdeild kvikmynd um tengsl bólusetninga  gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum (MMR) við einhverfu verður ekki sýnd á kvikmyndahátíðinni í Tribeca í New York í næsta mánuði líkt og til stóð. Þetta er ákvörðun stofnanda hátíðarinnar, Robert De Niro.

Kvikmyndin Vaxxed er framleidd af Andrew Wakefield sem er ákafur andstæðingur bólusetninga og í myndinni eru sögð tengsl á milli MMR bólusetningar og einhverfu en það hefur verið mjög dregið í efa af læknum og vísindamönnum.

Robert De Niro staðfesti á föstudag þessa ákvörðun aðstandenda Tribeca kvikmyndahátíðarinnar og hann segir að þau hafi ákveðnar efasemdir um það sem komi fram í myndinniæ

Leikarinn á sjálfur barn með einhverfu og hann segir að hann hafi vonast til þess að myndin myndi gefa tækifæri á að ræða málefnið. En eftir að hafa horft á myndina með skipuleggjendum hátíðarinnar og vísindamönnum segir De Niro að þau hafi ekki trú á að myndin hafi neitt fram að færa varðandi frekari umræður um þetta málefni.

Wakefield, bæði skrifaði handritið og leikstýrði Vaxxed en hann segir hana heimildarmynd byggða á uppljóstrunum.

Wakefield og framleiðandi Vaxxed, Del Bigtree, sendu frá sér tilkynningu eftir að De Niro hafði greint þeim frá ákvörðun Tribeca að enn einu sinni sé sýnt fram á vald stórfyrirtækja þar sem brotið er á málfrelsinu, listum og sannleikanum.

Wakefield, sem er breskur læknir en var sviptur lækningaleyfi árið 2010, hélt því fram í grein í breska lækna­tíma­rit­inu Lancet árið 1998 að sam­band væri á milli einhverfu og bólu­setn­ing­ar gegn misl­ing­um, rauðum hund­um og hettu­sótt. Þetta skaut for­eldr­um víða um heim skelk í bringu og veru­lega dró úr bólu­setn­ing­un­um með þeim af­leiðing­um að misl­ing­ar, sem áður höfðu vart sést, blossuðu upp að nýju og ollu dauða eða mikl­um skaða hjá mörg­um börn­um.

Seinna kom í ljós að grein­in byggðist á fölsuðum rann­sókn­arniður­stöðum og aðrar rann­sókn­ir benda til þess að ekk­ert sam­band sé á milli slíkr­ar bólu­setn­ing­ar og ein­hverfu. Enn­frem­ur kom í ljós að Wakefield var á mála hjá lög­manni sem hugðist lög­sækja fram­leiðend­ur bólu­efn­anna fyr­ir hönd nokk­urra fjöl­skyldna vegna gruns um þau hefðu valdið ein­hverfu hjá börn­um þeirra.

Greinin var síðar fjarlægð úr gagnagruni Lancet, samkvæmt fréttum BBC og Guardian

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert