Ted Trump kominn í heiminn

Donald Trump sést hér strjúka kvið dóttur sinnar Ivönku Trump
Donald Trump sést hér strjúka kvið dóttur sinnar Ivönku Trump AFP

Auðkýfingurinn Donald Trump eignaðist áttunda barnabarnið um páskana er Ivana dóttir hans eignaðist sitt þriðja barn. Hún og eiginmaður hennar hafa nefnt drenginn, Theodore  James, og voru gárungarnir fljótir að minna á að þeir sem heita Theodore fá mjög oft gælunafnið Ted. Ekki er vitað hvort það verði raunin í tilviki barnabarns Trumps því hans helsti keppinautur um að hljóta útnefningu sem forsetaframbjóðandi repúblikana heitir einmitt Ted Cruz.

Ivanka Trump tilkynnti um fæðingu sonar hennar og eiginmannsins, Jared Kushner, á páskadag.

Í frétt Guardian kemur fram að Donald Trump, sem ítrekað ræddi um þungun Ivönku á kosningafundum hefur ekki tjáðs sig opinberlega um fæðingu áttunda barnabarnsins. Blaðamaður Guardian segir að hann geti eflaust andað rólega yfir nafngiftinni því rétt nafn Ted Cruz er ekki Ted heldur Rafael Edward.

Ivanka er önnur af þremur börnum sem Donald átti með fyrrverandi eiginkonu sinni Ivönu Trump.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert