Fannst látinn í höfuðstöðvum Apple

Hægst hefur á sölu iPhone-símanna úr smiðju Apple.
Hægst hefur á sölu iPhone-símanna úr smiðju Apple. AFP

Starfsmaður tæknirisans Apple fannst látinn í dag í fundarherbergi í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Silicon Valley í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum samkvæmt frétt AFP. Lögreglan var kölluð á staðinn eftir að líkið fannst en skammbyssa fannst við hliðina á því.

Haft er eftir talsmanni lögreglunnar að karlmaður hafi fundist látinn en aðrir starfsmenn Apple væru ekki í hættu né almenningur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert