Skaut sig óvart í höfuðið

Wikipedia

Fimmtán ára gamall indverskur unglingsdrengur skaut sjálfan sig í höfuðið með skammbyssu föður síns á föstudaginn þegar hann reyndi að taka sjálfsmynd („selfie“) af sér með byssuna.

Drengurinn var fluttur á sjúkrahús samkvæmt frétt AFP og er talið að hann lifi slysaskotið af. Fram kemur í fréttinni að byssan sé venjulega geymd inni í skáp en svo var ekki í þetta skiptið. 

„Við ræðum við drenginn þegar hann hefur burði til þess. Við teljum að hluti af sökinni liggi ljóslega hjá föður hans fyrir að læsa ekki inni hlaðna byssu,“ segir talsmaður lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert