„Ég er svo þreytt“

Kim Tucci ásamt börn­un­um fimm.
Kim Tucci ásamt börn­un­um fimm. Ljós­mynd/​Erin El­iza­beth

„Hvernig ferð þú að þessu,“ spyr fréttakona BBC ástralska móður, Kim Tucci sem eignaðist fimmbura í janúar á þessu ári. „Ég verð bara að gera þetta,“ svarar hún. Fyrir átti konan þrjú börn; níu ára son, fjögurra ára dóttur og tveggja ára dóttur.

„Ég vakna, ég er að vinna verkefni, ég er tilbúin að takast á við daginn,“ segir hún. Aðspurð um hvaða verkefni geta mætt henni yfir daginn segir hún að þegar einn barn byrji að gráta fylgi hin eftir. Þau gráta síðan í takt. Hún segir að það sé mikið líf og fjör hjá fjölskyldunni en þau njóti þess.

Frétt mbl.is: Fimmtíu aðstoðuðu við fæðingu fimmbura

„Ert þú ekki þreytt,“ spyr fréttakonan. „Jú, ég er svo þreytt. Ég get ekki beðið eftir að fara að sofa.“ Hún segir stærstu áskorunina í dag að deila tíma sínum með öllum sem vilja hann.

Hér má sjá viðtal BBC við móðurina

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert