Telja Írak vera öruggt land

Frá Írak.
Frá Írak. AFP

Finnsk stjórnvöld hafa lýst því yfir að Afganir, Írakar og Sómalir geti snúið aftur til heimalanda sinna. Þau séu nú örugg lönd. Þetta kemur fram í nýjum leiðbeiningum frá útlendingastofnun Finnlands. 

Fram kemur á fréttavefnum Euobserver.com að þetta þýði að erfiðara verði fyrir ríkisborgara þessara landa að fá dvalarleyfi í Finnlandi. Hins vegar vari finnsk stjórnvöld ríkisborgara sína á sama tíma við því að ferðast til landanna þriggja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert