Tíu börn urðu fyrir eldingu í París

AFP

Ellefu manns, þar af tíu börn, slösuðust þegar eldingu sló niður í almenningsgarði í París í dag. Samkvæmt frétt AFP-fréttaveitunnar eru að minnsta kosti sex alvarlega slasaðir.

Mikið þrumuveður var á svæðinu, en atvikið átti sér stað í Parc Monceau-almenningsgarðinum í norðvesturhluta borgarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert