Lögreglan fylgdi eftir hinsegin göngu

Um 700 manns mættu í hinsegin göngu í Kíev, höfuðborg Úkraínu, í dag og sýndu stuðning með réttindum hinsegin fólks. Lögreglan fylgdi göngumönnum eftir, enda eru fordómar gegn hinsegin fólki miklir í landinu.

Samkvæmt skipuleggjendum göngunnar gekk hún vel og var lögreglunni þakkað fyrir að gæta öryggis þeirra sem tóku þátt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert