Gáfu trampólínið þegar stúlkan var myrt

Ellie var sex ára gömul þegar hún lést.
Ellie var sex ára gömul þegar hún lést. Skjáskot/Sky News

Þegar Ellie var tekin frá foreldrum sínum vegna gruns um að faðir hennar hefði beitt hana líkamlegu ofbeldi dvaldi hún hjá afa sínum og ömmu. Ákveðið var að foreldrar hennar fengju að halda forræðinu yfir henni og systkinum hennar en ellefu mánuðum síðar myrti Ben Butler, faðir barnanna, Ellie.

Afi og amma stúlkunnar gáfu trampólínið í sem var í garðinum þeirra skömmu eftir andlát stúlkunnar. Þar hafði Ellie hoppað tímunum saman og hlegið og því var þeim of þungbært að hafa leiktækið fyrir augunum alla daga. Pabbi Ellie hefur verið fundinn sekur um að myrða dóttur sína og þarf að sæta lífstíðarfangelsi. Hann á ekki möguleika á reynslulaus fyrr en eftir rúmlega tuttugu ár.

Neal Grey, afi Ellie og faðir móður hennar, ræddi við blaðamann Guardian um sorgina sem fylgdi því að missa barnabarnið. Hann hefur þó ekki aðeins misst stúlkuna litlu, heldur lést eiginkona hans 19. apríl, daginn sem réttarhöldin hófust í málinu.

Í húsinu eru margar myndir af Ellie ásamt teikningum hennar. Afi hennar og amma vildi ættleiða hana en ákveðið var að hún færi aftur til foreldra sinna. Þau notuðu alla þá fjármuni sem þau áttu á bankabók í baráttunni um forræðið en það dugði ekki til.

Hjónin hittu Ellie, systkini hennar og foreldra á ölstofu 5. maí árið 2013. Andlit stúlkunnar var málað í litum liðs Butler, Everton. Grey segist þó hafa séð merki um áverka undir málningunni. Þá var líkami hennar einnig marinn. Hann segist hafa spurt föður stúlkunnar um áverkana sem brást reiður við.

Afi Ellie hefur ekki rætt við dóttur sína, móður Ellie, í þrjú ár, eða frá því daginn áður en Ellie lét lífið. Þá hittu hjónin dóttur sína, Ellie og systkini hennar á McDonalds í Sutton í Bretlandi í hálftíma. Hann segir dóttur sína hafa litið illa út og honum var ljóst að henni leið ekki vel. Grey segist aldrei vilja sjá dóttur sína aftur og vonast til að hún fái þyngstu mögulegu refsingu fyrir þátt hennar í morðinu á stúlkunni.

Frétt mbl.is: Sviðsettu andlát sex ára dóttur sinnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert