Gíslatökumaðurinn sem þýska lögreglan skaut til bana í kvikmyndahúsi í Viernheim í gær var ekki vopnaður alvöruskotvopnum.
Frétt mbl.is: Skotárás í Þýskalandi
Þýsk yfirvöld hafa borið kennsl á manninn, sem var 19 ára gamall og fæddur í Mannheim, um 10 kílómetra frá Viernheim.
Yfirvöld segja hann hafa borið eftirlíkingar af riffli, skammbyssu og handsprengjum. Ekki er vitað hvað honum gekk til, en ekkert hefur fundist sem tengir manninn við pólitísk öfgaöfl eða hryðjuverkasamtök.