Tveir karlmenn skotnir til bana

Af vettvangi árásarinnar í nótt.
Af vettvangi árásarinnar í nótt. AFP

Tveir karlmenn voru skotnir til bana með Kalashnikov-árásarriffli og 14 ára stúlka var særð alvarlega í árás í nótt í borginni Marseille í Frakklandi. Mennirnir voru skotnir í bifreið á bílastæði í borginni. Stúlkan var stödd þar skammt frá og varð fyrir skotum.

Fram kemur í frétt AFP að skotárásir eigi sér stað í Marseille reglulega en borgin sé þekkt fyrir háa glæpatíðni. Sex hafa verið skotnir til bana það sem af er þessu ári en flest slík tilfelli tengjast átökum gengja. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert