Telja Ríki íslams bera ábyrgð

Frá Ataturk-flugvellinum nú í kvöld.
Frá Ataturk-flugvellinum nú í kvöld. AFP

Háttsettur tyrkneskur embættismaður telur Ríki íslams bera ábyrgð á sjálfsmorðsárásunum á Ataturk-flugvelli í Istanbúl í kvöld. Frá þessu greinir fréttaveitan AP nú seint í kvöld.

Skotárás hófst um klukkan 22 í kvöld að tyrkneskum tíma. Lauk henni með þremur sjálfsmorðssprengjum. 

Sjá frétt mbl.is: Þrjár sjálfsmorðssprengjur sprungu

Sjónarvottur segir við MSNBC að hann hafi séð lögreglumann koma hlaupandi að einum sjálfsmorðsárásarmanninum og tæklað hann í jörðina. Skömmu síðar sprakk sprengjan og tók líf þeirra beggja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert