Líki skolaði á land við ólympíuvöll

Frá strandblaksstað Ólympíuleikanna á Copacabana ströndinni.
Frá strandblaksstað Ólympíuleikanna á Copacabana ströndinni. AFP

Sundurlimuðu líki skolaði á land á Copacabana ströndina í Ríó í gærkvöldi, örfáa metra frá strandblaksvelli sem notaður verður á Ólympíuleikunum í borginni í sumar.  

CNN hefur eftir Andre Luiz, herlögreglumanni, að meðal þess sem hafi fundist væru fótur og aðrir ótilgreindir líkamshlutar. Telur lögreglan að líkið sé af ungri konu.

Málið þykir óþægilegt fyrir Brasilíumenn, en það er einungis eitt margra vandræða sem upp koma í Brasilíu fyrir Ólympíuleikana, eftir fjárhagsvandræði ríkisins, útbreiðslu Zika-veirunnar og spillingarásakana á hendur stjórnmálamönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert