Gekk nakinn um götur

Maðurinn klæðist strigaskóm og sokkum.
Maðurinn klæðist strigaskóm og sokkum. Skjáskot/BurlingtonPost

Nakinn karlmaður, sem gekk í rólegheitunum um götur Burlington í Vermont, hefur vakið mikla athygli. Hann var þó í strigaskóm og með „buff“ á höfði.

Nakti maðurinn sást fyrst í dag á gangi um Church Street. Vegfarendur voru undrandi en gatan er fjölfarin og þar koma margir til að versla og fara á veitingastaði.

Lögreglan í Burlington segir í samtali við AP-fréttastofuna að þó að nekt mannsins sé ósæmileg er ekki víst að hún sé ólögleg svo lengi sem hann fór nakinn að heiman og áreitir engan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert