Lögreglumenn skjóta ökumanninn – myndskeið

Vörubíllinn sem um ræðir.
Vörubíllinn sem um ræðir. Ljósmynd/Skjáskot af vef Sky News

Myndefni frá hryðjuverkaárásinni í Nice í gærkvöldi er farið að birtast í erlendum fjölmiðlum og á samskiptamiðlum á borð við Youtube og Twitter.

Sky News birti á Facebook-síðu sinni myndskeið af vopnuðum lögreglumönnum í skotbardaga við ökumann vörubílsins á strandgötunni í Nice. Lögreglan skaut manninn til bana, en hann hafði þá myrt að minnsta kosti 84 manns.

Mikið magn vopna og sprengiefna fannst í vörubílnum. Búið er að bera kennsl á manninn, en franskir fjölmiðlar greina frá því að nafn hans sé Mohamed Lahouaiej Bou­hlel. Hús­leit var gerð á heim­ili hans í morg­un. Sam­kvæmt heim­ild­um Reu­ters var hann 31 árs gam­all og af frönsku og túnisku bergi brot­inn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert