3.200 bjargað af hafi í gær

Flótti fólks frá Afríku til Evrópu er lífshættulegur. Á rúmlega …
Flótti fólks frá Afríku til Evrópu er lífshættulegur. Á rúmlega tveimur árum hafa 10 þúsund manns drukknað á ferðalaginu. AFP

Meira en 3.200 flóttamönnum var bjargað af Miðjarðarhafinu í gær í 25 aðgerðum ítölsku strandgæslunnar. Það er svipaður fjöldi og allir íbúar Borgarbyggðar. 

Einn fannst látinn í aðgerðunum.

Um var að ræða sameiginlega aðgerð ítalska hersins, strandgæslunnar, flóttamannaverkefnis á vegum ESB og nokkurra frjálsra félagasamtaka. 

Að þessum hópi meðtöldum hafa yfir 80 þúsund flóttamenn komið til Ítalíu á þessu ári, að því er fram kemur í upplýsingum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Flestir þeirra eru frá Afríku.

Frá árinu 2014 er talið að meira en 10 þúsund manns á flótta hafi drukknað í hafi á leið sinni til betra lífs í Evrópu. Langflestir hafa látist í Miðjarðarhafinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert