Sjúklingur skaut lækni sinn á háskólasjúkrahúsi í Berlín í dag. Hann skaut að því loknu sjálfan sig til bana. Læknirinn var fluttur á gjörgæslu þar sem hann lést af sárum sínum.
Árásin átti sér stað í Steglitz-hverfinu í suðvesturhluta Berlínar.
Lögreglan segir að engin hætta sé á ferðum fyrir aðra á sjúkrahúsinu og ekkert bendi til að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða. Margar árásir hafa verið framdar í Þýskalandi síðustu daga.
Talsmaður lögreglunnar segir í samtali við AFP-fréttastofuna að sjö skotum hafi verið hleypt af.