Að minnsta kosti átta létu lífið þegar tvær kröftugar sprengjur sprungu nálægt flugvellinum í Mogadishu í Sómalíu í dag. Önnur sprengjan sprakk nálægt skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í borginni.
Blaðamaður AFP á staðnum sagðist hafa heyrt skothvelli eftir sprengingarnar en önnur sprengjan er talin hafa verið bílasprengja.
Twin #explosion rock #Mogadishu airport pic.twitter.com/yZEQ1fzfHZ
— Aud™ (@CodeAud) July 26, 2016
Fréttin verður uppfærð.