Þrír birnir á ströndinni

Bjarnafjölskyldan á ströndinni.
Bjarnafjölskyldan á ströndinni. Skjáskot af YouTube

Þegar heitt er í veðri er ljúft að komast á ströndina og baða sig í volgu vatninu. Það á ekki aðeins við um menn heldur einnig önnur dýr. Birna og tveir húnar hennar komu einmitt í þessum tilgangi á strönd í Kaliforníu og skelltu sér í bað. Á sama tíma var fjöldi fólks á ströndinni og fylgdist með.

Ekki er alls óvíst að um sömu birnu og húna sé að ræða og fóru inn í hús ungs manns í Kaliforníu nýverið og rótuðu til í eldhúsinu hjá honum. Að því loknu opnaði bangsafjölskyldan rennidyr á húsinu og fór aftur út.

Frétt mbl.is: Fann þrjá birni í eldhúsinu

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert