Svelta í hel á meðan barist er um borgina

AFP

Orrustan um Aleppo á eftir að dragast á langinn segja stjórnmálaskýrendur en á sama tíma er líf tveggja milljóna íbúa í hættu. Því á sama tíma og bitist er um sýrlensku borgina svelta íbúar hennar í hel. 

Stríðið í Sýrlandi hefur staðið yfir á sjötta ár og bardagar hafa geisað í Aleppo, sem er önnur stærsta borg landsins, síðan árið 2012. Hún skiptist að mestu í tvennt: stjórnarherinn ræður yfir vesturhlutanum og uppreisnarmenn (her stjórnarandstæðinga) ræður yfir borginni í austri.

Aleppo
Aleppo AFP

 Innrásarherinn (Army of Conquest), sem árið 2015 hrakti stjórnarherinn á brott úr stórum hluta Idlib-héraðs, leikur lykilhlutverk í herafla stjórnarandstæðinga, það er uppreisnarmanna, í þessari baráttu um borgina gegn forseta Sýrlands, Bashar al-Assad, og her hans.

 Í bandalagi uppreisnarhersins er að finna tugi hópa þar á meðal Fateh al-Sham Front, sem áður tengdist Al-Qaeda, og íslömsku vígasveitirnar Ahrar al-Sham.

Á meðan barist er um Aleppo svelta íbúarnir í hel.
Á meðan barist er um Aleppo svelta íbúarnir í hel. AFP

Að sögn hernaðarsérfræðinga samanstendur hernaðarbandalagið af 30-40 þúsund vel þjálfuðum hermönnum, meðal annars þúsundum útlendra vígamanna. Hergögn þeirra eru heldur ekki af verri endanum, framleidd í Bandaríkjunum en tekin af sýrlenska hernum. En þrátt fyrir bandarísk vopn þá eru það bílsprengjur og sjálfsvígsárásir sem valda mestum ótta og ógn meðal andstæðinganna.

Daglegur viðburður í Aleppo.
Daglegur viðburður í Aleppo. AFP

 Sýrlenski herinn hefur yfir miklum mannafla að ráða - 30-40 þúsund hermönnum - sem einnig koma víða að, svo sem frá Íran, Írak og Hezbollah-liðar frá Líbanon. Eins er herinn vel vopnum búinn. Eins skiptir miklu máli stuðningur frá birninum í austri því Rússar verja stjórnarherinn úr lofti.

Það er mikið í húfi fyrir stríðandi fylkingar. „Uppreisnarmennirnir geta einfaldlega ekki yfirgefið bræður sína í stríðshrjáðri Aleppo,“ segir hernaðarsérfræðingurinn Fabrice Balanche.

„Fyrir herbúðir Assads þá þýðir endurheimt Aleppo að hægt verður að umkringja uppreisnarmenn í Idlib-héraði,“ bætir hann við.

AFP

Jafnframt yrði staða stjórnar Assads mjög sterk á alþjóðavísu ef hún nær Aleppo á sitt vald að nýju. 

Frétt mbl.is: Hundruð mannslífa í hættu

AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert