Argentíski íþróttamaðurinn Santiago Raúl Lange fer með gull heim frá Ríó í ár eftir að hafa farið með sigur af hólmi í siglingum í gær. Hann er 54 ára og hefur keppt ásamt hinni 29 ára gömlu Carranzu Saroli frá árinu 2014.
Í fyrra greindist Lange með krabbamein í lunga. Hann gekkst undir aðgerð þar sem hálft annað lungað var fjarlægt.
Eftir greininguna hugsaði Lange stöðugt um ólympíuleikana fimm sem hann hefur keppt á og bronsin tvö sem hann hefur unnið þar. Hann segir í viðtali við CNN að tilhugsunin hafi hjálpað honum að vera jákvæður í baráttunni.
„Þegar ég lít til baka var þetta góð reynsla, erfið en ég lærði mikið. Ég gekkst undir aðgerð í Barselóna og eftir fimm daga var ég farinn að hjóla; mánuði síðar var ég farinn að sigla aftur,“ segir hann.
„Þetta gæti gefið mörgu fólki sem glímir við það sem ég fór í gegnum styrk. En ég vil einblína á það sem við gerðum íþróttalega séð. Sjúkdómurinn hefur ekkert að gera með það, það var steinn í veginum. Ég varð upptekinn að því að komast til Ríó vel mjög vel undirbúinn og við gerðum það,“ bætir hann við.