Það var svo sannarlega líf og fjör í Ríó í Brasilíu í gærkvöldi þegar lokahátíð Ólympíuleikanna fór fram. Flugeldar lýstu upp himininn og dansarar dilluðu sér í litríkum klæðnaði. Ljósmyndarar kepptust við að fanga stemninguna og má sjá hluta afrakstursins í myndasyrpu sem fylgir fréttinni.