Jarðskjálfti upp á 6,8 stig

Upptök skjálftans í Myanmar samkvæmt bandarísku jarðskjálftamiðstöðinni.
Upptök skjálftans í Myanmar samkvæmt bandarísku jarðskjálftamiðstöðinni. mynd/usgs.gov

Jarðskjálfti sem mældist 6,8 stig reið yfir Búrma í morgun. Ekki er vitað um hvort einhver hafi látist né heldur hvort miklar skemmdir hafa orðið á mannvirkjum.

Skjálftinn, sem var á miklu dýpi, fannst í höfuðborg Taílands, Bangkok, og eins í höfuðborg Búrma, Yangon (en borgin hét áður Rangoon)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert