Vill efla kjarnorkuvopnabúr N-Kóreu

Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-Un.
Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-Un. AFP

Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur fyrirskipað her sínum að halda áfram að efla kjarnorkuvopnabúr landsins.

Þremur tilraunaflugskeytum var skotið frá Norður-Kóreu í dag, að sögn stjórnvalda í Seúl í Suður-Kóreu.

Frétt mbl.is: Fordæma flugskeytatilraunir N-Kóreu

Á sama tíma hafa leiðtogar heimsins fundað á G20-ráðstefnunni í Kína.

„Hann lagði áherslu á að haldið yrði áfram með það frábæra verk sem hefur verið unnið við að efla kjarnorkuvopnabúr landsins á þessu ári,“ sagði norðurkóreska fréttastofan KCNA um Kim Jong-Un.

Fréttastofan sagði tilraunina í dag hafa gengið fullkomlega upp og að Kim Jon-Un hefði verið yfir sig ánægður með gang mála.

Bandarísk og japönsk stjórnvöld hafa lýst yfir miklum áhyggjum vegna tilrauna N-Kóreumanna.

Frétt mbl.is: Öryggisráðið fundar vegna N-Kóreu

Eftirlíkingar af n-kóreskum flugskeytum.
Eftirlíkingar af n-kóreskum flugskeytum. AFP

Brot á samþykktum öryggisráðs SÞ

Varnarmálaráðuneyti S-Kóreu sagðist telja að um Rodong-flugskeyti hefði verið að ræða með um 1.000 km drægni og að japönsk stjórnvöld hefðu ekki verið látin vita af þeim.

„Flugskeytaskot N-Kóreu er klárt brot á samþykktum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og eiga að sýna styrk landsins í kjarnorku- og flugskeytamálum á meðan á G20-ráðstefnunni stendur,“ sagði talsmaður s-kóreska ráðuneytisins í yfirlýsingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert