Myrti börn sín fjögur og særði konuna

mbl.is/Styrmir Kári

Lögregluyfirvöld í Michigan handtóku í morgun mann sem grunaður er um að hafa myrt fjögur börn sín og stungið eiginkonu sína, sem er í lífshættu. Morðin áttu sér stað í borginni Dearborn Heights.

Börnin voru 4 ára, 6 ára, 17 ára og 19 ára. Lögreglustjóri borgarinnar, Lee Gavin, hefur ekki viljað tjá sig um hvernig þau voru myrt en samkvæmt Detroit News köfnuðu tvö yngstu af völdum koleinoxíðs. Eldri börnin fundust bundin og skotin.

Rannsókn stendur yfir en að sögn Gavin virðist sem maðurinn hafi látið til skarar skríða í kjölfar deilna innan fjölskyldunnar.

Morðin áttu sér stað í friðsælli götu og kom það nágrönnunum verulega á óvart að vakna við lögreglubíla fyrir utan. Afmælisskreytingar héngu á húsinu og fyrr um morgunin voru börn að leik fyrir utan grunnskóla við enda götunnar.

Karen Radtke, einn íbúa, sagði áfall að komast að því hvað gerðist. „Ég sá alltaf litlu stúlkurnar í bakgarðinum, að leika sér við hundinn.“

Annar nágranni sagði að kona hans hefði vakið sig rétt eftir miðnætti. Hún heyrði grunaða og eiginkonu hans rífast fyrir utan, og byssuskot í kjölfarið.

Guardian sagði frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert