Átta slökkviliðsmenn fórust í eldsvoða

Mynd úr safni
Mynd úr safni AFP

Átta slökkviliðsmenn fórust í eldsvoða í vöruhúsi í Moskvu í gær. Eldurinn braust út síðdegis í gær og voru 160 manns inni í húsinu. Eldhafið var gríðarlegt en byggingin er um 4000 fermetrar að stærð. Húsið er gjörónýtt en um plast birgðageymslu var að ræða. 

Lík þeirra fundust ekki fyrr en í nótt en þeir misstu samband við stjórnstöð er þeir lokuðust inni í eldhafinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert