Héldu fórnarlambinu á meðan karlinn nauðgaði

Breska lögreglan
Breska lögreglan Wikipedia

Átján ára gamalli stúlku var nauðgað í Manchester aðfararnótt fimmtudags. Ungu konunni var haldið af tveimur konum á meðan félagi þeirra nauðgaði henni. Árásarfólkið rændi hana einnig.  

Í frétt Guardian kemur fram að fólkið hafi hlaupið í burtu og skilið ungu stúlkuna eftir við Major Street eftir árásina. 

Yfirlögregluþjónn í kynferðisbrotadeild lögreglunnar í Manchester, Dave Moores, segir að um hryllilega árás hafi verið að ræða og eðlilega sé stúlkan í áfalli. Hún hafi fengið áfallahjálp frá sérþjálfuðu starfsfólki lögreglunnar og rannsókn málsins sé í fullum gangi.

Lögreglan hefur sent frá sér tilkynningu með lýsingu á árásarfólkinu en samkvæmt upplýsingum frá fórnarlambinu var önnur konan um 18 ára en hin um tvítugt. Karlinn var rúmlega tvítugur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert