Viðvörunarmerki um vanhæfi Trump

Myndir forsetaframbjóandanna prýða bíl CNN sjónvarpsstöðvarinnar í undirbúningi fyrir kappræðurnar …
Myndir forsetaframbjóandanna prýða bíl CNN sjónvarpsstöðvarinnar í undirbúningi fyrir kappræðurnar á morgun. Búist er við að allt að 90 milljónir muni fylgjast með kappræðunum. AFP

Mikil spenna er nú gagnvart fyrstu kappræðum þeirra Hillary Clinton, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, og Donald Trump, frambjóðanda repúblikana sem fara fram á morgun og ljóst er að þrýstingurinn á frambjóðendurna er gríðarlegur.

Trump reyndi að koma Clinton úr jafnvægi með því að hóta að bjóða Gennifer Flowers, fyrrum ástkonu Bill Clinton eiginmanns hennar, sæti í fremstu röð á kappræðunum. Kellyanne Conway, kosningastjóri Trump, segir hótunina setta fram eingöngu til að sýna að Trump gæti komið Clinton úr jafnvægi. Það væru hins vegar engin áform uppi um að bjóða Flowers á kappræðurnar.

Frétt mbl.is: Fyrrverandi ástkona Clinton á fremsta bekk

Geta kostað frambjóðanda sigurinn

„Þetta er viðvörunarmerki um vanhæfi Donald Trump og eineltistilburði hans, jafnvel áður en kappræðurnar hefjast,“ sagði Robbie Mook, kosningastjóri Clinton í viðtali við CNN.

Talið er að allt að 90 milljónir manna muni fylgjast með kappræðum þeirra Trump og Clinton sem sjónvarpað verður frá Hofstra háskólanum í New York, þegar ekki eru nema sex vikur til kosninga.

Stjórnmálaskýrendur segja kappræðurnar yfirleitt ekki geta fært frambjóðanda sigurinn á silfurfati, en þær geti hins vegar vel kostað þá sigurinn. Ein einasta setning, eða örlítil mismæli geta valdið miklu tjóni.

Undirbúningur er nú á fullu fyrir kappræður þeirra Donald Trump …
Undirbúningur er nú á fullu fyrir kappræður þeirra Donald Trump og Hillary Clinton annað kvöld. AFP

Lítill munur er Clinton og Trump í  aðdraganda kappræðnanna. Nýleg skoðanakönnun sem unnin var fyrir dagblaðið Washington Post og fréttastofu ABC sýnir að 48% kjósenda gátu hugsað sér að kjósa Clinton, en 41% Trump. Gary Johnson frambjóðandi Frjálshyggjuflokksins er með 7% og Jill Stein frambjóðandi Græningjaflokksins með 2%.

Þegar eingöngu var spurt um afstöðu fólks til þeirra Trump og Clinton voru þau hnífjöfn með 46% fylgi. „Ég held að þetta verði hnífjafnt allt  fram að kosningum,“ hefur AFP-fréttastofan eftir Tim Kaine, varaforsetaefni Clinton. „Við verðum kynna málstað okkar á hverjum degi og kappræður eru frábær leið til þess.“

Flestir bandarískir kjósendur virðast nú hafa gert upp hug sinn hvern þeir muni kjósa, en enn eru þó 9% kjósenda óákveðin.

Fær fjölskyldumeðlimi til að leika Trump

Athygli hefur vakið að dagblaðið New York Times hefur lýst yfir stuðningi við Clinton. Hún hefur í aðdraganda kappræðnanna hefur haldið sig heimavið í Chappaqua í norðurhluta New York ásamt aðstoðarfólki og æft sig undir kappræðurnar, m.a. með því að fá fjölskyldumeðlimi til að leika Trump.

Clinton er sögð hafa eytt nokkrum tíma í að kynna sér persónuleika Trump með það í huga að koma honum úr jafnvægi, en þannig gæti hún sýnt að hann hefur hvorki þá sjálfstjórn né jafnlyndi sem forseti þurfi að búa yfir.

Bíti hann á agnið, þá á Trump á hættu að tapa atkvæðum kvenna sem hann á raunar þegar erfiðara með að höfða til. Konur eru taldar vera um 53% þeirra sem mæta á kjörstað. Verði honum fótaskortur á tungunni í þessum efnum má búast við að þau tilsvör verði sýnd aftur og aftur á fjölmiðlum.

Starfsmenn framboðs Clinton eru búnir að setja saman langan lista yfir lygar sem Trump á að hafa farið með.

Vill ekki æfa sig með leikara

Í herbúðum Trump segja menn undirbúninginn ganga mjög vel.  Öldungadeildarþingmaðurinn Ted Cruz, sem keppti lengi vel við Trump um útnefningu repúblikana, tilkynnti á föstudag að hann muni kjósa Trump.

Trump er sagður hafa nýtt föstudag og sunnudag í að undirbúa kappræðurnar. Hann tók sér hins vegar hlé frá undirbúninginum í gær og hélt kosningaherferð sinni áfram.

Trump er þá sagður ófús að æfa sig fyrir kappræðurnar með einhvern í hlutverki Clinton. Hann hefur hins vegar horft á myndbandsupptökur af andstæðingi sínum til að undirbúa sig.

88% telja Clinton gáfaða

 Clinton, sem nú býður sig fram í annað sinn, er sögð hafa meiru að tapa. Hún er reynslumikill stjórnmálamaður og eftir tæplega 40 ár í stjórnmálum og opinbera kerfinu þá þekkir hún málefnin mjög vel.

88% Bandaríkjamanna telja hana líka vera gáfaða, en síðustu kannanir sýna að ekki nema 66% telja hana vera heiðarlega. Þá hafa 57% Bandaríkjamanna neikvæða ímynd af Clinton af konu sem þeir sjá sem gáfaða, fjarlæga og kalda. Álíka margir hafa neikvæða ímynd af Trump.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert