Tveir alvarlega særðir

Lögreglan fyrir utan heimili árásarmannsins en þangað flúði hann eftir …
Lögreglan fyrir utan heimili árásarmannsins en þangað flúði hann eftir árásina. AFP

Karlmaður á sjötugsaldri hóf skothríð fyrir utan stórverslun í nágrenni Parísar í dag. Tveir slösuðust alvarlega í árásinni. Árásarmaðurinn flúði svo af vettvangi.

Lögreglan umkringdi fljótlega heimili mannsins. Fórnarlömb hans voru 57 ára kona og 73 ára karlmaður. Lögreglan segir að um „persónulegt uppgjör“ hafi verið að ræða.

Árásarmaðurinn hefur áður komið við sögu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert