Trump frekur og dónalegur

Alicia Machado er opinber stuðningsmaður Hillary Clinton.
Alicia Machado er opinber stuðningsmaður Hillary Clinton. AFP

Fyrrverandi Ungfrú alheimur segir að Donald Trump, sem átti keppnina á sínum tíma, hafi kallað sig „ungfrú tiltekt“ og „ungfrú Svínku“. Alicia Machado vann keppnina árið 1996 og keppti fyrir hönd Venesúela. Hún segir Trump bæði frekan og dónalegan en uppnefnin gaf hann henni eftir ða hún þyngdist í kjölfar sigursins.

Machado kom fram í viðtali við fréttamann CNN Anderson Cooper í þættinum AC360. „Ég þekki Trump vel og ég get fullyrt að hann er sama manneskja nú og hann var fyrir tveimur áratugum.“

Í kappræðunum í fyrrinótt tók Hillary Clinton Machado sem dæmi um hvernig Trump hagaði sér gagnvart konum. Hún sagði að Trump gæti verið viss um að Machado myndi kjósa í kosningunum í nóvember. 

Með því að kalla Machado „ungfrú tiltekt“ (e. Miss Housekeeping) var hann að vísa til kvenna af suður-amerískum uppruna sem vinna í þjónustugeiranum, m.a. í Bandaríkjunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert