Fann ungbarn og beinagrind í tösku

Wikipedia

Tæplega tvítugur karlmaður hafði samband við lögregluna í borginni Hanover í Þýskalandi í gær eftir að hann hafði fundið nýfætt ungbarn í ferðatösku í íbúð sinni. Fleira var í töskunni. Beinagrind af öðru litlu barni.

Barnið er stúlkubarn og var það flutt á sjúkrahús og er ástand þess stöðugt. Lögreglan handtók í kjölfarið 22 ára unnustu mannsins þar sem hún var í vinnu sinni en hún er talin vera móðir barnanna. Kemur hún fyrir dómara síðar í dag. Maðurinn hefur verið yfirheyrður en ekki er talið að hann hafi komið að málinu. 

Konan er sökuð um manndráp og tilraun til manndráps. Lögreglan telur að látna barnið hafi látist fyrir talsverðu síðan. 

Fréttavefurinn Thelocal.de segir frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert