Innbrotsþjófarnir í miðjum klíðum

Þetta er sófinn sem innbrotsþjófarnir nutu lífsins á á heimili …
Þetta er sófinn sem innbrotsþjófarnir nutu lífsins á á heimili Barnes. Skjáskot

„Ég kom inn og þar voru þau í stofunni að stunda kynlíf,“ segir Jamie Barnes sem varð fyrir þeirri undarlegu upplifun að standa innbrotsþjófa að því að vera í miðjum samförum á heimili sínu í Suður-Memphis í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum. Hennar viðbrögð voru stöðva atlotin með kústi. „Mig langaði svo mikið að lemja þennan mann," sagði Barnes.

Huffington Post segir frá en Barnes hafði verið fjarverandi frá heimili sínu í nokkra daga þegar hún kom að innbrotsþjófunum lífsglöðu. Barnes segir að konan hafi reynt að klæða sig í föt í hennar eigu sem hún tók ekki í mál og hrifsaði þau af henni.

Samkvæmt Barnes hurfu verðmæti úr húsinu fyrir allt að 2.200 dollara eða ríflega 250 þúsund krónur. Maðurinn er enn laus en konan var handtekin og situr í gæsluvarðhaldi hjá lögregluyfirvöldum á staðnum.

Jamie Barnes var ekki skemmt þegar hún kom að fólki …
Jamie Barnes var ekki skemmt þegar hún kom að fólki í miðjum klíðum á heimili sínu. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert