Trump svarar Machado fullum hálsi

Alicia Machado og Donald Trump eru ekki perluvinir.
Alicia Machado og Donald Trump eru ekki perluvinir. AFP

Donald Trump hefur svarað fyrrverandi Ungfrú alheimi, Alicia Machado, sem gagnrýndi Trump fyrir karlrembuleg ummæli í sinn garð. Trump segir ummæli Machado ógeðsleg.

Frétt mbl.is: Trump frekur og dónalegur

Forsetaframbjóðandinn hvatti Bandaríkjamenn til að skoða sögu Aliciu Machado vel og „kynlífsmyndbandið hennar.“ Trump gaf það einnig í skyn að Hillary Clinton, mótframbjóðandi hans í forsetakosningunum, hefði tryggt Machado bandarískan ríkisborgararétt en hún er frá Venesúela.

Cinton svaraði Trump á twitter: „Þetta eru fáránleg ummæli, jafnvel á mælikvarða Trumps.“

Í kapp­ræðunumaðfaranótt þriðjudag tók Cl­int­on Machado sem dæmi um hvernig Trump hagaði sér gagn­vart kon­um. Hún sagði að Trump gæti verið viss um að Machado myndi kjósa í kosn­ing­un­um í nóv­em­ber. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert