Hárprúðasta ungbarnið?

Hann Junior litli vekur athygli hver sem hann fer.
Hann Junior litli vekur athygli hver sem hann fer.

Hárið á höfði hins níu vikna gamla Junior Cox Noon verður til þess að það tekur móður hans mjög langan tíma að kaupa í matinn þegar hún er með hann í för. Forvitið, ókunnugt fólk kemur upp að henni og vill heilsa upp á drenginn sem hlýtur að vera meðal hárprúðustu barna veraldar.

Myndskeið þar sem móðir hans Chelsea þurrkar hár hans með hárþurrku er nú eitt það vinsælasta á netinu. Engan skal undra, hann Junior er einstaklega sætur og brosir krúttlega til móður sinnar er hún hefur lokið við að þurrka hárið. „Fólk spyr mig hvort ég ætli að klippa hárið en þetta er svo einstakt svo ég held að ég leyfi því bara að vera,“ segir móðirin.

Móðirin segir í samtali við MailOnline að sonur hennar njóti athyglinnar. Hann vilji helst ekki hafa húfu eða hatt á höfðinu. Vegna hársins er hann nú oft kallaður Litli-Björn.

Drengurinn er fæddur í Brighton á Englandi. Hann er níu vikna á myndskeiðinu hér á neðan. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert