Klessti á lögreglubíl ber að ofan

Bíll Miröndu Rader klessti á lögreglubíl.
Bíll Miröndu Rader klessti á lögreglubíl. AFP

Háskólanemi rétt fyrir utan Houston í Bandaríkjunum keyrði á lögreglubíl á meðan hún var að taka sjálfsmynd ber að ofan, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Hin 19 ára gamla Miranda Rader lauk bílferð sinni á miðvikudagskvöld með því að senda kærasta sínum myndir af sér fáklæddri á samfélagsmiðlinum Snapchat.

Einnig var opin vínflaska við hlið hennar í bílnum, samkvæmt því sem kemur fram í skýrslu lögreglu. Enginn slasaðist þegar bíll Rader skall á lögreglubíl.

Lögreglumaðurinn sem á var keyrt kom að bíl Rader þar sem hún var að klæða sig í bol. Rader sagði lögreglumanninum að hún væri á heimleið.

„Ég spurði hana hvers vegna hún væri ekki klædd á meðan hún væri að keyra. Hún sagði mér að hún væri að senda kærastanum sínum mynd á meðan hún væri á rauðu ljósi,“ skrifaði lögregluþjónn í skýrslu vegna árekstursins.

Rader var handtekin grunuð um ölvun við akstur. Henni var sleppt lausri úr fangelsi gegn tryggingagjaldi í gærmorgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert