Stórbruni í Kristjánssandi

Frá Kristjánssandi
Frá Kristjánssandi Af vef Wikipedia

Vitni sáu tvær manneskjur hlaupa í burtu af vettvangi eftir að eldur braust út í norsku borginni Kristjánssandi í nótt. Nokkur timburhús urðu eldinum að bráð.

Um tvöleytið í nótt kviknaði í timburhúsi við Henrik Wergelands í miðbæ Kristjánssands, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Ole Hortemo, lögreglustjóri í borginni, segir í samtali við VG að lögregla hafi rætt við vitni sem sá tvær manneskjur hlaupa frá Henrik Wergelands götu og þaðan upp Kirkjustræti þegar eldurinn braust út. Ekki hefur tekist að hafa uppi á fólkinu en samkvæmt lýsingu vitna var önnur manneskjan með klút fyrir neðri hluta andlitsins og hin með hettu á höfði. Lögregla biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband.

Þrjú timburhús í götunni urðu eldinum að bráð og er eitt þeirra gjörónýtt og hin tvö illa farin. Rýma þurfti nærliggjandi hús og þar á meðal hótel vegna eldsins og reyks en í morgun hafði slökkvilið náð tökum á eldinum.

<a href="http://www.vg.no/nyheter/innenriks/branner/voldsom-brann-i-kristiansand-sentrum-politiet-etterlyser-to-personer/a/23834205/" target="_blank">Frétt VG</a>
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert