Guðni sendir Trump heillaóskir

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur sent Donald Trump, nýkjörnum forseta Bandaríkjanna, heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni í kjölfar sigurs hans í forsetakosningunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta.

„Forseti áréttaði í kveðju sinni rótgróna samvinnu og vináttu þjóðanna tveggja og langa sameiginlega sögu sem teygði anga sína allt aftur til þess er sæfarendur frá Íslandi og Grænlandi tóku land í Norður-Ameríku fyrir meira en þúsund árum.

Öldum síðar hefðu þúsundir Íslendinga flutt búferlum vestur um haf og leitað nýrra tækifæra sem nýbúar í frjálsum samfélögum.“

Þá segir að enda þótt Bandaríkin séu eitt stærsta lýðræðisríki veraldar, og Ísland eitt hið minnsta, deili þjóðirnar mörgum mikilvægum gildum.

„Við styðjum einhuga frelsi til hugsana og tjáningar, jafnrétti kynjanna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð litarhafti eða trú.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert