Eyðilegging Nimrud algjör

Eyðilegging hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams á fornu borginni Nimrud í Írak virðist vera algjör, en  tveir dagar eru nú frá því að hersveitir Írakshers náðu borginni úr höndum samtakanna.

Stór hluti Nimrud, sem taldist sannkallað menningardjásn og mikilvægar minjar um Ass­yríu­tíma­bil­ið, er nú rústir einar. Risastyttur hafa verið mölbrotnar og ferhyrnd og stölluð hof, svo nefnd siggurathof, eru nú aðeins brotabrot af sinni upprunalegu stærð.

Borg­in var stofnuð á þrett­ándu öld fyr­ir Krist og er við Tígris-ána í um þrjá­tíu kíló­metra fjar­lægð frá Mós­úl, ann­arri stærstu borg Íraks, sem Íraksher vinnur nú að því að ná úr höndum hryðjuverkasamtakanna.

Í Nimrud var m.a. að finna þekkt borgarvirkis grafhaug, hallir og grafir assyrískra konunga, guðahof, risastyttur af ljónum, vængjuðum nautum og víðfrægar freskur.

„Þegar maður kom hingað áður, þá var auðvelt að sjá fyrir sér lífið eins og það var. Núna er ekkert eftir,“ hefur AFP-fréttastofan eftir Ali al-Bayati, hermanni eins þeirra ættflokka sem taka þátt í áhlaupinu á Mósúl og sem komu til Nimrud í gær.  

„Þetta er 100% eyðilegging,“ sagði al-Bayati. „Að missa Nimrud finnst mér vera sársaukafyllra en að missa mitt eigið heimili.“

Í mars í fyrra tilkynnti ferðamálaráðuneyti Íraks að hryðjuverkasamtökin hefðu notað jarðýtur og aðrar þungavélar til að eyðileggja svæðið. Mánuði síðar birti Ríki íslams myndbandsupptökur sem sýnir vígamenn samtakanna brjóta styttur og freskur með sleggjum og sprengja að því loknu þær minjar sem eftir stóðu.

UNESCO sagði í fyrra eyðileggingu Nimrud vera stríðsglæp og að forsvarsmenn Ríki íslams virtust staðráðnir í að þurrka út allar minjar um sögu Íraks. Samtökin hafa hafnað allri list og arkitektúr sem skurðgoðadýrkun og hafa þau eyðilagt fjölda annarra menningarminja í Írak og Sýrlandi.

Nimrud liggur um 30 km suðaustur af Mosul og var …
Nimrud liggur um 30 km suðaustur af Mosul og var ein helsta heimildin um menningu Asseríumanna. Skemmdarverk liðsmanna Ríkis íslam á staðnum verða ekki metin í peningum. AFP
Mynd frá Nimrud sem tekin er í júlí árið 2001.
Mynd frá Nimrud sem tekin er í júlí árið 2001. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert