Slegist um matarbitana

Bæjarbúar í taílenska bænum Lopuri bjóða til óvenjulegrar veislu í dag en þar er hundruðum apa sem eru búsettir í bænum boðið í mikla matarveislu. Um árvissan viðburð er að ræða og er vinsælt meðal ferðamanna að fylgjast með atganginum við matarborðið. 

Aparnir voru ekki lengi að rífa í sig ávaxtahlaðborðið sem beið þeirra og hikuðu þeir ekki við að beita handafli til að komast að veisluborðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert