Vopnaður ræningi heldur sjö manns í gíslingu á ferðaskrifstofu í París. Lögreglan í París tísti á Twitter að til standi að stöðva manninn og ráðlagði hún ökumönnum að halda sig fjarri svæðinu.
Maðurinn hefur ógnað fólkinu með byssu.
Ferðaskrifstofan er við Massena-breiðgötuna sem er í suðurhluta borgarinnar.
Lögreglan hefur komið sér fyrir skammt frá ferðaskrifstofunni og girt svæðið af.