Konungsfjölskyldan í jólapeysum

Breska konungsfjölskyldan tekur sig mjög vel út í skemmtilegum jólapeysum.
Breska konungsfjölskyldan tekur sig mjög vel út í skemmtilegum jólapeysum. Skjáskot/instagram

Er breska konungsfjölskyldan kannski ekkert svo ólík öllum öðrum? Bregða þau líka á leik í fyndnum og fáránlegum jólapeysum, rétt eins og við hin? Ekki ber á öðru á þessari mynd. En henni skal þó taka með fyrirvara. Hér er ekki á ferðinni hin raunverulega konungsfjölskylda heldur vaxmyndir af henni.

Vaxmyndasafn Madame Tussaud í London hefur nú afhjúpað jólaklæðnað konungsfjölskyldunnar í safninu. Allt er þetta gert fyrir gott málefni í samstarfi við mannúðarsamtökin Save The Children. Til að klæða mætti fjölskylduna í þessi föt þurfti að fá leyfi hennar. Það var auðfengið, að því er fram kemur í frétt Huffington Post.

Árlegur jólapeysudagur Save The Children er 16. desember næstkomandi. Sá dagur er einnig haldinn hátíðlegur hér á landi. Er honum ætlað að safna peningum fyrir fátæk börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert