Banna karlrembukylfingum að sitja á bekk

Skilaboðin til félaga í Muirfield eru sögð koma frá konum …
Skilaboðin til félaga í Muirfield eru sögð koma frá konum í Edinborg. ljósmynd/Twitter

Félagar í Muirfield-golfklúbbnum í Skotlandi sem höfnuðu nýlega að leyfa konum að ganga í klúbbinn fá ekki lengur að setjast á bekk í almenningsgarði í Edinborg, að minnsta kosti ef eitthvað er að marka merki sem komið hefur verið fyrir á bekknum í nafni kvenna í borginni.

Breska golfsambandið ákvað að taka Muirfield úr hópi valla sem eiga möguleika á að halda Opna mótið, eitt risamótanna fjögurra í golfinu, eftir að rúmur þriðjungur félaga í klúbbunum felldu tillögu um að breyta stofnskrá hans til að leyfa konum að gerast félagar. Aukinn meirihluta þurfti til að tillagan yrði samþykkt.

Merkið á bekknum í almenningsgarði við Vestur-Prinsagötu í Edinborg skaut upp kollinum um helgina.

„Félögum í Muirfield-golfklúbbnum er hér með bannað að sitja á þessum bekk. Samkvæmt skipun kvenna í Edinborg,“ segir í merkinu.

Síðan hefur mynd af merkinu farið víða um netheima og verð deilt margsinnis á Facebook og Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert