Sex þúsund konur frá viðvörunartæki

Austurríska lögreglan á varðbergi á jólamarkaði.
Austurríska lögreglan á varðbergi á jólamarkaði. AFP

Lögreglan í Austurríki ætlar að dreifa sex þúsund vasa-viðvörunartækjum á gamlárskvöld í von um að koma í veg fyrir kynferðisárásir eins og gerðar voru í nágrannalandinu Þýskalandi fyrir ári síðan.

„Þetta er þjóðarherferð sem er beint til kvenna á gamlárskvöld,“ sagði talsmaður austurríska innanríkisráðuneytisins.

Viðvörunartækin, sem eru ókeypis, senda frá sér hávært hljóð sem á að hrekja í burtu mögulega kynferðisbrotamenn.

Innanríkisráðuneytið ætlar einnig að efla öryggisgæslu á fjölmennum viðburðum í ljósi árásarinnar sem var gerð á jólamarkað í Berlín í gærkvöldi.

Reiknað er með því að nokkur hundruð þúsund gestir taki þátt í nýársfögnuði í miðborg Vínar.

Á gamlárskvöld í fyrra voru hundruð kvenna rændar og þær áreittar kynferðislega af hópi manna, flestum af arabískum og norður-afrískum uppruna í þýsku borginni Köln.

Frétt mbl.is: 516 árásir tilkynntar í Köln

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert