Prinsessan missti fóstur

Zara Tindall er mikil hestakona og hefur keppt á Ólympíuleikum.
Zara Tindall er mikil hestakona og hefur keppt á Ólympíuleikum. Af Wikipedia

Zara Tindall, næstelsta barnabarn Elísabetar Bretlandsdrottningar, hefur misst fóstur. Barnsins var að vænta í heiminn í vor.

Tindall er dóttir Önnu prinsessu, systur Karls Bretaprins. Eiginmaður hennar heitir Mike Tindall. 

Talsmaður Buckingham-hallar tilkynnti um fósturmissinn. Engar skýringar frekari skýringar voru gefnar aðrar en þær að Tindall væri ekki í lífshættu.

„Sá sorglegi atburður átti sér stað að Zara og Mike Tindall hafa misst barnið sitt. Á þessum erfiðu tímum biðjum við alla um að virða einkalíf þeirra,“ sagði talsmaðurinn, að því er fram kemur í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar.

Tindall á eina dóttur sem er orðin þriggja ára. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert