Hafði rangt fyrir sér um áhrif Brexit

Englandsbanki.
Englandsbanki. AFP

Svartsýnar spár Englandsbanka um efnahagsleg áhrif þess að breskir kjósendur samþykktu að segja skilið við Evrópusambandið voru ekki á rökum reistar. Þetta viðurkenndi aðalhagfræðingur bankans, Andy Haldane, á fundi á vegum bresku hugveitunnar Institute for Government í London, höfuðborg Bretlands, á fimmtudaginn.

Fjallað er um málið á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph en þar segir að Haldane hafi viðurkennt rangar spár Englandsbanka á sama tíma og nýjar hagtölur sýndu að mestur vöxtur hafi verið í bresku efnahagslífi á síðasta ári af þeim ríkjum heimsins sem standa best að vígi efnahagslega þvert á svartsýnar hagspár.

Þannig sýna nýjar tölur að vöxtur í þjónustuviðskiptum hafi ekki verið meiri undanfarna 17 mánuði og methækkun á vísitölu hlutabréfa í stærstu bresku fyrirtækjunum í sjötta sinn í röð á fimmtudaginn sem er mesta samfellda hækkun hennar undanfarna tvo áratugi. 

Haldane sagði þá gagnrýni sem sett hefði verið fram á hagfræðinga á undanförnum árum eiga rétt á sér í ljósi þess að þeim hefði mistekist að spá fyrir um alþjóðlegu fjármálakrísuna og haft rangt fyrir sér um efnahagslegar afleiðingar þess að Bretar kysu að yfirgefa Evrópusambandið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert