Bíl ekið viljandi inn í mannþröng

AFP

Þrír eru látnir og 20 slasaðir eftir að bifreið var ekið viljandi á gangandi vegfarendur í miðborg Melbourne í Ástralíu. Árásarmaðurinn var handtekinn segir lögregla.

Atvikið er ekki talið vera hryðjuverk, segir yfirlögregluþjónn, Stuart Bateson, en maðurinn ók á fólkið við Bourke St Mall, sem er vinsælt verslunarsvæði, skömmu fyrir klukkan 14 að staðartíma, klukkan 3 í nótt að íslenskum tíma.

Bateson segir að lögregla telji að maðurinn hafi ekið viljandi inn í mannþröngina. Á myndum sem sýndar voru í ástralska sjónvarpinu sést dumbrauðum bíl ekið í óreglulega hringi fyrir framan Flinders Street lestarstöðina þar skammt frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert