Nekt í öllu sínu veldi

AFP

Mexíkóska skipafélagið Original Group hóf í fyrra að bjóða upp á siglingar þar sem fötin eru skilin eftir heima. Mikill áhugi er á slíkum ferðalögum með skemmtiferðaskipum og er stefnt á næstu ferð í apríl á næsta ári.

Ferð skemmtiferðaskipsins nefnist Desire og er aðeins í boði fyrir pör. Siglt verður frá Barcelona í apríl 2018, þaðan til Marseilles, Monte Carlo auk nokkurra viðkomustaða á Ítalíu. Ferðinni lýkur í Róm. 

Lýsingarorðin eru ekki spöruð þegar kemur að dagskránni um borð og ljóst að fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af hvítri rönd eftir baðfatnað í ferðinni. 

Hér er hægt að lesa nánar um dagskrána og ferðalagið á vef Fox.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert