Trump: „Gengur ljómandi vel“

Trump undirritaði tilskipunina í gær.
Trump undirritaði tilskipunina í gær. AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að aðgerðir hans sem banna múslimum frá sjö ríkjum að koma til landsins hafi gengið „ljómandi vel“. Margir hafa aftur á móti gagnrýnt forsetan harðlega fyrir að mismuna fólki eftir trúarbrögðum.

Trump undirritaði á föstudag forsetatilskipum sem meinar flóttafólki að koma til landsins í að 90 daga, en aðgerðirnar ná til Írans, Íraks, Lýbíu, Sómalíu, Sýrlands, Súdans og Jemen.

Viða hafa brotist út mótmæli, m.a. við Kennedy-flugvöllinn í New …
Viða hafa brotist út mótmæli, m.a. við Kennedy-flugvöllinn í New York þar sem þessi mynd var tekin. AFP

„Þetta gengur ljómandi vel. Þið sjáið það á flugvöllunum, þið sjáið það út um allt,“ sagði Trump við blaðamenn í dag eftir að ferðamönnum frá ofangreindum ríkjum var meinað að fara um borð í flugvélar sem áttu að fljúga til Bandaríkjanna. Víða hafa brotist út mótmæli. 

„Afar strangt bann verður í gildi og við munum leggjast í umfangsmiklar bakgrunnsrannsóknir, sem hefði átt að vera komið í gagnið hér í landi fyrir löngu,“ sagði forsetinn.

Margir hafa ákveðið að leita réttar síns vegna ákvörðunar forsetans og hafa mannréttindasamtök höfðað mál fyrir hönd tveggja Íraka sem voru stöðvaðir á Kennedy-flugvellinum í New York í gærkvöldi. Ljóst þykir að hörð barátta er fram undan fyrir bandarískum dómstólum. 

Margir hafa komið saman til að sýna samstöðu með múslimum.
Margir hafa komið saman til að sýna samstöðu með múslimum. AFP

Víða hafa brotist út mótmæli við bandaríska flugvelli vegna tilskipunar forsetans og hafa nokkrir verið handteknir.

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu margir ferðamenn hafi orðið fyrir barðinu á aðgerðum forsetans, sem Trump segir að séu nauðsynlegar til að koma í veg fyrir að íslamskir öfgamenn og hryðjuverkamenn komi til landsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert