Þriðjungur telur sig öruggari

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir tilskipunina auka öryggi Bandaríkjamanna.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir tilskipunina auka öryggi Bandaríkjamanna. AFP

Tæplega þriðjungur Bandaríkjamanna telur sig öruggari eftir að tilskipun Donald Trump um bann við komu flótta­fólks og borg­ara sjö ríkja til Banda­ríkj­anna tók gildi.

Þetta kemur fram í niðurstöðum á könnun sem fréttastofa Reuters og greiningarfyrirtækið Ipsos lögðu fyrir fólk í öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna dagana 30. og 31. janúar.

Trump segir tilskipunina auka öryggi Bandaríkjanna fyrir hryðjuverkum en miðað við niðurstöðurnar má ætla að meirihluti landsmanna sé því ósammála.

Í ljós kom að um það bil helmingur þjóðarinnar styður tilskipunina en aðeins 31% taldi að bannið gerði það öruggara. 33% sögðust ekki halda að bannið hefði nein áhrif og 26% sagði bannið hafa neikvæð áhrif á öryggistilfinningu sína. 10% sögðust ekki vita hvaða áhrif bannið hefði á öryggi sitt.

Repúblikanar heldur fylgjandi

Fylgismenn Demókrataflokksins voru þrisvar sinnum líklegri en fylgismenn Repúblikanaflokksins til að vera sammála því að „Bandaríkin ættu að halda áfram að taka á móti innflytjendum og flóttamönnum.“

Aftur á móti voru fylgismenn Repúblikanaflokksins þrisvar sinnum líklegri til að vera sammála eftirfarandi: „Bann við komu fólks frá múslimalöndum er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir hryðjuverk.“

53% demókrata sögðust vera „mjög ósammála“ banninu á meðan að 51% Repúblikana sögðust vera „mjög sammála“ því. Alls sögðust 49% vera sammála tilskipuninni en 41% sögðust ósammála.

Svarendur voru 1.201 talsins en könnunin fór fram á ensku í öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert